Maður veit ekki hvernig maður tekur á hlutunum fyrr en þeir gerast það er sko satt. Þegar Bert hlustaði á skilaboðin sín í fyrradag um fimmleytið og kom fram til mín algerlega kríthvítur og sagði að það hefði verið að kalla hann út með hernum þá var eitt sem komst að hjá mér...ég varð að segja honum hversu mikið ég elskaði hann. Ég gerði það auðvitað og ætla að segja honum það eins oft og ég get þar til hann fer. Svo færði ég mig í var og kiknaði í hnjánum og hélt mér í vegginn. Eruð þið ekki þakklát fyrir veggi ;)?
Bert er bifvélavirki og er það hans aðal-atvinna en hann er líka í varaliðinu (reserve) í Navy og hefur verið slíkur sl.18 árin. Það þýðir að hann mætir eina helgi í mánuði á æfingu (drill) og fer svo vanalega einu sinni á ári í burtu í 2 vikur á æfingu og á hverjum fjórðungi á 5 daga æfingu. En nú breytist það maður minn.
19.feb nk.þarf hann að melda sig inn á herstöðina hér og fer 22.feb í þriggja mánaða æfingaprógramm fyrir lokatakmarkið sem er Djíbútí á austurströnd Afríku. Æfingarnar eiga sér stað í Mississippi,California og Suður Karolína. Á þessum þremur mánuðum fær hann 5 daga leyfi. 27.maí flýgur hann svo út til Djíbútí og verður í 350 daga. Mér skilst eftir að hafa talað við fólk og fylgst með vinkonum sem eiga menn í þessum stöðum að það geti,skv.ordrunum styst eða þá jafnvel lengst.
Undanfarið hef ég haft sterka tilfinningu á að vindáttin sé að breytast. Ég hef ekki viljað fara neitt,ég hef hitt fáa að minni eigin ósk og verið fegin þegar ég fæ ekki barnapössun og haft því afsökun á að komast ekki eitthvert.Við Bert höfum verið samstígari og þéttari saman heldur en áður og hjónabandið gengið vel og ég hef hreinlega verið svo ástfangin af honum að mig verkjar. Og því verkjar mig svo mikið núna að vita að hann þurfi að fara,að ég finn til.
Mér finnst gott og nauðsynlegt að hafa þak yfir lífinu,vita hvert stefnir og vita hvað þarf að gera. Því er ég,ásamt Bert,búin að draga upp lista yfir þá hluti sem þarf að gera áður en hann fer. Listinn er langur. Annað kemur bara í ljós.
Ég veit að þetta er hægt-milljónir hafa gert þetta áður og stríð hafa alltaf verið háð og verða alltaf háð,hvort sem mér líkar betur eða ver.Ég bara skil þetta stríð ekki...engan veginn og styð það ekki en ég styð fólkið sem er kvatt þangað.
Ef ég á að vera alveg óskaplega hreinskilin þá hræðir það mig ekki að vera án hans þó svo ég eigi eftir að sakna hans. Það sem hræðir mig mest af öllu eru fjármálin...ég hef ekkert haft puttana í þeim því þegar ég steig inn í heim Berts þá var ekkert að því hvernig hann fór með málin og það sem er ekki brotið þarf ekki að laga.Ég tók bara annað upp á mína arma. Ég er hrædd um að klúðra málunum því ég klúðraði mínum fjármálum einu sinni. Einnig er ég hrædd um að ef að allt verður of mikið einhvernveginn að þá missi ég þolinmæðina við strákana okkar og það eiga þeir síst skilið.
Tvennt er á hreinu þó-við verðum áfram hér,förum ekki til Íslands nema í heimsókn og er áætlað að fara heim í byrjun júlí og vera í 4-5 vikur. Eyjólfur byrjar í Kindergarten í haust,Natti fer í Pre-School og ég stefni á skóla. Ég held að einhver partur inní mér vilji gera þetta svona-sanna fyrir mér og öðrum,þó mest fyrir mér að ég geti þetta og muni gera þetta vel.Að ég geti staðið ein sem ungamamma þegar þörf er á. En mikið óskaplega er ég lítil núna......þið úti sem lesið þetta-hver veit nema þið horfið á þennan texta og hugsið með sjálfum ykkur hversu óttalegur kettlingur ég sé,ég heyrði það sagt þegar ég var krakki af stelpunum í fótboltanum og það hefur setið í mér. En þetta er ekki fótbolti,þetta er miklu mikilvægara og ég og mínir ætlum að standa upp sem þokkalegir sigurvegarar að leik loknum. Ég fæ bara að nota bloggið sem útrás og lesendur sem boxpúða:)
Að horfa á björtu hliðarnar er ekki eitthvað sem þarf að segja mér,þið sem þekkið mig vitið að ég er snillingur í því og hef ég nú þegar fundið nokkrar bjartar hliðar. Eins og gægjugat á útidyrahurðina-það fæ ég loksins:)Bert hefur lengi viljað smá pásu frá verkstæðinu,það fær hann sko rækilega núna. Helgarferð ætlum við hjónin í því við höfum varla fengið að vera tvö ein síðan síðast og hef ég sagt í djóki að það þurfti helvítis herinn til svo það gerðist.
En vitið hvað? Ég á besta mann (að mínu mati auðvitað) í heimi...ég á mann sem er heiðarlegur,með styrka fætur,gott höfuð á herðum,rólegur í tíðinni og tekur á hlutunum á sinn hátt. Ég ætla að trúa því að hvað sem bíður okkar þegar hann kemur heim aftur að þá getum við tekið á því saman og leitað hjálpar ef með þarf. Við vorum í sundur lengi hér um árið og ætlum að notast á við þann lærdóm sem fékkst út úr því til að hjálpa okkur með næsta verkefni.
Þetta er orðið langt en trúið mér,ég gæti skrifað svo miklu meira. Ég kveð í kútinn,Svanfríður.
27 comments:
awww, risaknús! Og þú massar þetta!
Farðu vel yfir með Bert hvernig hann er vanur að snúa fjármálunum, eins og þú segir, ekki reyna að laga það sem er ekki brotið - bara halda áfram að láta rúlla.
Svo verður þessi tími búinn fyrr en þið vitið af...
Elsku Svanfríðu mín, að vera hrædd er bara merki um að þér stendur ekki á sama, það myndu nú flestum líða þannig í þínum sporum. Þú átt eftir að standa þig vel, enda með eindæmum hugrökk og dugleg. Tíminn flýgur .. knús frá mér
Elsku Swany min. Ekki vard eg nu glod ad heyra tetta, en eg segi eins og Hildigunnur : Tu massar tetta :)
Mer finnst tetta samt oskaplega skritid tvi eg man ekki betur en ad i kosningabarattunni hafi verid talad um ad draga ur mannafla - en nuna er verid ad draga fjolskyldumann ut i vitleysuna???
En eg hugsa til tin rofan min og eg veit lika ad tetta verdur allt i lagi. Knus og kossar XXX
Það sem ég hugsa stíft til ykkar þessa dagana. Þið eruð öll sömul hetjur að takast á við þetta af svona miklu hugrekki og dugnaði. Jólaknús og kossar frá mér :)
Ég er hérna hjartans mín.
Elsku Svanfríður, takk fyrir að deila þessu með okkur. Ég hvet þig til að nota bloggið þegar þú vilt... held að það sé mjög gott fyrir þig og þaðan færðu styrk. Þegar fjarlægðin er mikil við nánustu fjölskyldu og vini að þá er þetta ein leiðin til að brúa bilið aðeins ;-) Þú hefur fullan rétt til að vera "kettlingur" og lítil í þér, vááá.... ég væri það sko í þínum sporum og svo byggir maður sig bara uppí það sem koma skal. Þú ert ótrúlega sterk, hugrökk, sjálfstæð, jákvæð og lífsglöð stelpa sem á eftir að hjálpa þér í gegnum þennan tíma. Líst vel á það hjá þér að koma í langt frí til Íslands, það mun stytta tímann helling. Frábært hjá þér að vera strax búin að finna björtu hliðarnar og nú er bara að einblýna á þær.
Knús til þín Svanfríður mín
ég hlakka til að lesa áframhaldandi blogg, get ekki ímyndað mér hvernig þér/ykkur líður núna. Þetta hlýtur að vera mjög erfitt líka fyrir Bert, að vera í burtu frá þér og strákunum, það er ekkert smá að missa heilt ár úr lifi barnanna.
Þetta með fjármálin, þú byrjar bara að æfa þig núna, aðalmálið er að borga á réttum tíma, þú gerir bara lista yfir dagsetningar og þá ætti þetta að vera í lagi.
Knús í húsið ykkar,
Sirrý
Ég finn til með þér og skil að þú sért kvíðin, en er sannfærð um að þú stendur þig, hvað sem á dynur. Þú stækkar upp í það hlutverk sem þér er ætlað.
Og þið Bert eruð heppin að eiga hvort annað að:)
Mikið vildi ég að ég byggi yfir broti af þeirri jákvæðni og ákveðni sem þú býrð yfir kæra vinkona! Þú átt eftir að standa þig, ert sterk sem fíll!
Kær kveðja Helga Sigurbjörg
Ég veit að þú átt eftir að standa þig Svanfríður mín. Það er ótrúlegt þegar á reynir hverju maður lumar á og kemur sjálfum sér á óvart með. Þannig held ég að þetta verði hjá þér, þú finnur á þér nýjar hliðar sem þroska þig enn meira og styrkja.
Gætir þú ekki fengið einhvern sem þú treystir vel til þess að vera þér innan handar með fjármálin ef þér finnst erfitt að fást við þau.
Svo veit ég að við bloggvinir þínir stöndum eins þétt við bakið á þér og hægt er að gera úr fjarlægð.
Knús til ykkar Svanfríður mín.
Ég er svo mikill friðarsinni og svo upptekin af því að ég ætti líklega að vera þögla týpan. En ég held að þú munir alveg standa þig, ég hef líka klúðrað fjármunum en eftir það lært að standa í skilum, hef litlar áhyggjur af þér með það. Ég vona að þetta gangi fljótt yfir og fari vel. Bestu jólakveðjur til ykkar allra. Kristín í París.
Hæ fínust mín, þú bjargar þér í gegnum þetta eins og allt hitt, en mikið skil ég þessar hugrenningar þínar s.s. fjármálin og fl.og fl. Enginn getur sett sig í þín spor nema hafa staðið í þeim sjálfur, en ég er sannfærð um að þið gerið þetta með stæl. Knús og klemmmmm Magga
Eins og stundum áður þá tárast ég við lesturinn. Svanfríður hvað sem hver segir þá ertu engin kettlingur! Það er allt í lagi að fá smá kvíðahnút í magan og tár í augun. Smá skammtur af kvíða er það sem drífur okkur áfram, heldur í okkur lífinu, þ.e á meðan hann er innan skynsamlegra marka. Þetta er dagsatt ;) lærði það í skólanum.
Þetta er langur tími og þú mátt sko vel láta vaða hér á blogginu, kannast vel við hvað það getur verið gott að skilja ýmislegt eftir hér.
Gangi ykkur vel að klára listan og takast á við þetta verkefni og njótið hvors annars fram að brottför.
Knús í kotið
Þið eruð yndisleg öll sem ein.Knús og þakkir.
Sendi þér stórt knús elsku Svanfríður. Ég er sannfærð um að þið komist í gegnum þetta :-*
Fáðu þér stílabók og skrifaðu niður allt sem Berti segir um fjármálin, rafmagnið, bílinn, vatns inntakið í húsið, gas ef þið eruð með það, fáðu líka öryggiskeðju á útihurðir o.s.f.
Öll höfum við verið kettlingar einhvern tíman en þú ert fullvaxin læða núna :)
Söknuðurinn er mikill en þið getið vonandi verið í netsambandi sem og gemsa. Þegar þú verður smeik, hrædd eða einmanna vona ég að þú hringir!
Ekki hafa áhyggjur af heimkomunni. Í fyrsta lagi borgar sig aldrei að taka 'sorgen paa forskud, í öðru lagi (Jón Baldvins kenndi mér) er Bert ekki óhardnaður ungur maður og í þriðja lagi er grunnur ykkar traustur. Margt fleira sem ég gæti sagt, en þetta dugar í kvöld.
Knús,
Sísí
Elsku Svanfríður, ég tek undir með Betu; þú munt stækka upp í það hlutverk sem þér er falið. Svo hefur þú hjartað á réttum stað og meðan þú heldur áfram að hlusta á það eru þér allir vegir færir: )
Elsku Svanfríður mín.Mér bara brá þegar ég las þetta,en þú rúllar þessu upp það er ég viss um,ég veit af reynslunni að þú ert ótrúlega dugleg og stóðst þig frábærlega þegar þú varst hér ófrísk og Bert í annari heimsálfu.Ég er innilega sammála þér að stríð ættu ekki að vera til.Vertu dugleg að blogga við viljum öll fylgjast með ykkur.Manstu hvað við enduðum oftast með hlátri þegar við vorum búnar að leysa öll heimsins vandamál við eldhúsborðið í Lögbergsgötunni í denn!hjartans kveðjur.Ásta.
Já Ásta-þú og þið voruð bara best:)
Ég get nú lítið sagt annað en gangi ykkur vel, þetta er eitthvað sem maður þekkir ekki hér sem betur fer og getur ekki ýmindað sér hvernig er að ganga í gegnum svona.
Mér sýnist þú hafa þétt net af (net)vinum í kringum þig sem er ómetanlegt og eftir því sem ég les þá átt þú örugglega eftir að standa þig.
Kveðja úr hríðarbyl á héraði.
Sigurveig
Úff..þetta eru svakalegar fréttir. Ég sendi ykkur bara jákvæða strauma og veit að þið öll eigið eftir að standa þét saman þrátt fyrir fjarlægðina. 350 dagar er mjög langur tími...en um daginn var ég einmitt að pæla hvað það væri stutt síðan við héldum jólin 2008. Tíminn flýgur áfram, sérstaklega þegar maður á börn og þú ert heppin að hafa litlu gullmolana hjá þér :)
Gangi ykkur öllum vel!
Bestu kveðjur,
Íris
Hvað sagði ekki skáldið okkar góða Jónas Hallgrímsson í síðasta erindi Ferðaloka:
Háa skilur hnetti
himingeimur,
blað skilur bakka og egg;
en anda sem unnast
fær aldregi
eilífð að skilið.
Fann þetta líka á ensku :)
The heavens part
the high planets,
blade parts back and edge;
not even eter-
nity can part
souls that are sealed in love.
Kveðja, gamall nágranni.
Takk fyrir,ég sit enn við sama borðið,það má alltaf senda línu(póst).Kv.Ásta.
Þetta eru ótrúlegar fréttir, hef ekki þekkt neinn sem þurfti að standa frammi fyrir svona erfiðu verkefni. En ykkur tekst að komast í gegnum það, engin spurning.
Njótið daganna sem þig eigið fram að brottför og eigið góð og yndisleg jól. Kveðja úr kotinu í Portúgal.
Vá það er ekkert smáræði sem sett er á herðarnar á ykkur...ég upplifði svipað þegar minn maður var meira og minna heilt ár að túra um heiminn og ég get sagt þér það að tíminn líður hratt!!! Gangi ykkur vel og megi Guð og góðir vættir vaka yfir ykkur.
Kveðja
Rúna
Frábær pistill frænka og ég hef fulla trú á þér - þú átt ekki eftir að klúðra neinu og að sjálfsögðu áttu eftir að standa þig með sóma.
Gleðileg jól frænka kær og knús á mann og drengi ..
Kveðja Inda
Gleðileg jól elsku vinkona og knús til þín.
Kærar kveðjur yfir til þín, Elsa Lára og fjölskylda.
Sendu inn athugasemd