Ég segi núna að ég muni elda góðan mat fyrir okkur 3 en einhvernveginn yrði ég ekki hissa ef eldamennskan yrði ekki stórtæk. En matur getur verið góður án þess að vera stórtækur.
Undanfarin vika hefur verið of dramatísk að mínu mati því eins og margir vita þá þoli ég ekki-ég endurtek; ÉG ÞOLI EKKI drama eða leiðindi.En því miður fer það nú þannig stundum að leiðindi gerast. Þegar það gerist þá tekur það mig langan tíma að jafna mig. Það er eins og líkaminn á mér fari í mauk, hjartað slær hraðar og ég fæ vonda verki í magann og að ég tali nú ekki um grátstafinn í hálsinum.
Ég átti von á Völuspáardiskunum mínum í hús á fimmtudaginn í síðustu viku og var ég orðin mjög spennt því ég ætlaði svo að taka þá með mér heim til Íslands og selja í Pennan Eymundsson. Ég er meira að segja með samninginn inni í tölvunni.
Óhugnaður.
Diskarnir ásamt þeim sem gerði þá komu hér í litla bláa húsið og ýki ég ekki þegar ég segi að mér varð líkamlega illt við að horfa á ársvinnu okkar Bob (sem nú er hættur að vasast í disknum)eyðilagða á nokkrum mínútum. Maðurinn, sem átti að vera fagmaður, hafði klúðrað öllu því sem hægt var að klúðra-allt frá útliti hljómdisksins sjálfs, bæði að innan (tónlistin) og að utan (útlit disksins). Umslagið, fram-og bakhlið, var svartbleik og öll máð. Það var gert á venjulegan pappír og hafði maðurinn klippt sumar myndirnar og upplýsingarnar í burtu. Það var stafsetningavilla og hét diskurinn orðið VOLUPSA í stað VÖLUSPÁ. Merkimiðar voru límdir utan á hulstrið og skrifað ofan í þá með svörtum og stundum grænum tússpenna. Einnig hafði hann sett öll 67 kvæðin í eitt kvæði þannig að það er ekki hægt að skipta á milli kafla á disknum. Ef þið trúið mér ekki þá getið þið spurt mömmu og pabba því ég sýndi þeim diskinn í gegnum SKYPE.
Ég hef aldrei aldrei aldrei orðið svona sár, reið. Ég hef aldrei skammast eins og ég gerði þennan dag.
Ég hafði oft talað við manninn í síma-hann virtist hafa þetta allt á hreinu og taldi enga þörf á að senda mér prufueintak þegar ég innti hann eftir því. (ég hefði átt auðvitað að heimta prufueintak en ég lærði af þeim mistökum og geri það næst) Eftir orðaskipti í tölvu (þar sem ég baðst afsökunar á reiði minni)þá hringdi hann í mig og hótaði mér lögsókn. Ég er enn að velta fyrir mér á hvaða forsendum hann ætlar að lögsækja mig.
Inni í þvottahúsi sitja 40 stk.af ónothæfum geisladiskum og ég er búin að fela þá svo ég þurfi ekki að horfa á þá á hverjum degi.
Góðu fréttirnar eru þær að ég hafði samband við Pennan Eymundsson og má ég hafa samband aftur þegar ég er komin með diskana í hendur. Nú safna ég mér bara pening og læt gera stærri pöntun og sel svo eins og vindurinn:)
Nokkrum dögum eftir þessi skemmtilegheit þá varð vatnsdælan okkar ónýt og Bert auðvitað ekki heima til þess að redda málunum. Mikið óskaplega varð ég pirruð út í allt og alla þennan tíma.
Ég er búin að kaupa nýja dælu-vinur okkar Berts setti hana í (n.b. hann líka huggaði mig þegar ég grét vegna disksins-þannig að hann hefur staðið sig vel í vináttunni sl. daga ;) ) Dælan virkar svona þegar henni dettur í hug en mest um vert er að við erum með vatn og Bert kemur heim á laugardaginn og getur þá stillt hana svo hún virki alltaf og þegar okkur hentar:)
Það varla gerist að ég fái heimþrá. En undanfarna daga þegar þetta gekk allt saman á þá vantaði mig foreldrana og vinkonurnar svo mikið að mig verkjaði. En svo þegar hlutirnir lagast og ákvarðanir eru teknar þá líður það hjá. Enda er ég sko að fara að hitta alla og faðma í næstu viku!!!!!!! Liggaliggalái.
Ég og húsflugan hérna, kveðjum ykkur í kútinn með von um gott kvitt:) Svanfríður.
14 comments:
Gott kvitt færðu hjartans mín. Ef bloggið á að halda í við fésið verðum við að vera duglegri í kvittinu. Þú átt skilið góðan frídag, svo njóttu hans. mamma
Asnakall! Það á að flengja svona fólk....
Vona þú njótir frídagsins sæta mín :-*
Elsku Svanfríður mín, þetta hefur verið erfið vika...alveg líka í meira lagi! Gott að allt lítur nú til betri vegar og núna í dag (fimmtudag) áttu vonandi yndislegar stundir...sem þú átt svo sannarlega skilið!
Hlakka til að hitta þig á Íslandinu og fá smá að endurupplifa Ameríkustundir sem ég sakna oft svo mikið!
Bestu kveðjur,
Árdís
Úff, glatað! Það er brjáluð vinna að koma svona diski á koppinn og maður verður að vera með puttana í honum alla leið. Varstu búin að borga þessum gaur?
Mikið skil ég að þú skildir verða reið þetta er ófyrirgefanlegt,eyðileggja alla þessa vinnu fyrir þér(ykkur).Ég hefði brjálast.Góðar kveðjur og góða ferð heim til Íslands "Alltaf birtir upp um síðir".Ásta.
Jesus minn en su vidskipti. Getur thy ekki kaert hann til the better business beuro (veit ekki alveg hvernig thad we skrifad). Eg myndi athuga thad. Knus,Sigurborg
agalegt að heyra þetta, bullandi vanhæfur maður þarna í vinnu! skil vel að þér hafi sárnað, ferlegt alveg.
Iss piss!! Segðu bara þessum gjörsamlega óhæfa manni að hann skuli sko ekkert vera að hóta því að kæra þig því að ef einhver er með mál í höndunum þá ert það þú!! Og mundu svo bara að góðir hlutir gerast fyrir gott fólk og þar sem að þú ert gott fólk þá reddast þessi diskamál alveg klárlega!!!
Svo vona ég að þu hafir átt notalegan frídag :)
b.kv. af klakanum - Anna Jóna
Það er svo sárt að lenda í svona svikurum því að maður fer að skammast svo mikið í sjálfum sér fyrir að hafa treyst þeim í blindni... Ekki skammast í sjálfri þér...
Knús og meira knús héðan úr Hveragerðinu... Stella Hrönn
Leiðinlegt að heyra um farir þínar. Ég mundi halda að þú ættir fullan rétt á að borga þessum (hugsa ljótt) manni ekki krónu, og hana nú. Ég vona að þetta eigi allt eftir að ganga upp á góðum degi. Ég reikna ekki með öðru en að þú fáir mörg góð knús þegar þú kemur á klakan. Njóttu þeirrar ferðar vel
Arrrrg, þvílík leiðindi. Ég bíð þá bara eftir betrumbættri útgáfu. Gangi þér vel Svanfríður mín...anda inn..anda út og telja upp á 20!
Þetta er nú ljóti vitleysinginn! Mikið skil ég að þú sért svekt! En jæja, kvitt kvitt, og hlakka til að sjá þig kelli mín!
magnea
Dónakall! kv. Silja
Ég tek undir með þeim hér að ofan, hvurs lags asna og dónakall er þetta eiginlega??? Spurning hvort það væri ekki skynsamlegast að leyfa honum að þiggja atvinnuleysisbætur í kreppunni!
Hafðu það annars voða gott á Íslandi, verst að ná ekki að hitta þig og knúsa smá, það verður bara næst;)
kv. Helga Sigurbjörg
Sendu inn athugasemd