sunnudagur, maí 17, 2009

?

Ég hef bara alls ekki verið í stuði til þess að skrifa hér inn enda sést það-vika síðan síðast.
Þó að margt hafi gengið á þá ætla ég ekki út í þá sálma hér en ég ætla þó að segja að vatnsdælan í litla bláa húsinu gaf upp öndina í dag og erum við því vatsnlaus og Bert í California og ekki kann ég að laga dæluna. Natti skilur ekkert í að geta ekki skrúfað frá krananum og segir bara "a bú" Í kvöld þá náði ég í stóran pott, setti vatn í hann úr vatnspumpunni sem er hér inni, hitaði vatnið og þvoði drengjunum upp úr því. Ég tek svo vatn aftur úr pumpunni og sturta niður úr klósettinu og vonandi verður nægt vatn til í kaffið í fyrramálið:) Skemmtilegt.

Í næstu viku þá er förinni heitið til Íslands.Mig svimar þegar ég hugsa um ferðina því mér finnst einhvernveginn vera svo mikil hlaup á mér en kannski er það bara bull í mér..kannski mun blóðið ekki renna í mér þegar ég lendi. En mikið verður gaman.

Ég setti upp sumartáslurnar í gærkveldi. Þær eru rauðlakkaðar og Bert hlýtur að hætta að kalla þær sjóaratáslur.Það má ekki móðga rauðlakkaðar tær.

Keypti mér belti í gær;eitt mosagrænt og hitt rauðköflótt með skuplu í stíl.Fer vel við fyrrv.sjóaratáslurnar.

Hlakka til að fara í appelsínugula kjólinn minn.

Eyjólfur hrinti mér fram úr eina nóttina í vikunni sem leið. Hvernig er hægt að vera mínus núll í þyngd en hafa það af að hrinda fullvaxta konu fram úr rúminu???

Eyjólfur var spurður í dag af miðaldra konu:Doesn't your mother feed  you? Svar hans var "no" 

Ég á fimmtudaginn algerlega fyrir mig.Fer í klippingu,vax,hádegismat og kaffi áður en ég bruna og sæki grallaraspóana.

Bert kemur á laugardaginn og ég ætla að kyssa hann vel og lengi.Það er gott/vont að sakna einhvers.

Margt annað í gangi.Komið bara í heimsókn ef þið viljið fá "in depth version" af þessu öllu saman:) 
Ég kveð ykkur í kútinn,Svanfríður.

7 comments:

Anna Bogga sagði...

Vona að þú eigir ánægjulega dvöl á klakanum.

Íris Gísladóttir sagði...

Ég vona að þú fáir vatnsmálin í lag mín kæra. Það er svona útilegu-fílingur á heimilinu greinilega.

Mér finnst nú verra að þú gefir Eyjólfi ekkert að borða ha,ha,ha,

Til lukku með sumartáslurnar :)

Nafnlaus sagði...

Hjartans mín, bara 9 dagar! mamma

Védís sagði...

Doesn´t your mother feed you?
No
Hahaha, ég hló núna. Sé þetta alveg í anda.

Vona að ég nái að hitta þig meðan á Íslandsdvölinni stendur.

Nafnlaus sagði...

Uss ekki öfunda ég þig nú af vatnsleysinu! Vonandi reddast það nú hjá þér. Vonandi áttu svo góða Íslandsdvöl í vændum. Farðu vel með þig vinkona.
kv. Helga Sigurbjörg

Frú Sigurbjörg sagði...

Fékstu ekki örugglega skilaboðin frá mér á fésinu?
Væri svo ósköp gaman ef hægt væri að sjá framan í þig:)

baun sagði...

góða ferð Svanfríður:)