Núna í tæpa viku þá hef ég reynt að blogga en ég get það ekki, allavega ekki með góðu þannig að ég læt allt þannig vera þar til ég kem heim í lok næstu viku. Þar til langar mig að óska ykkur öllum gleðilegs árs, með hjartans þökk fyrir samfylgdina í gegnum árið. Gangið hægt um gleðinnar dyr annaðkvöld og hlakka ég til að heyra frá ykkur næst. Svanfríður sem kveður ykkur í kútinn í síðasta sinn á því herrans ári 2006.
laugardagur, desember 30, 2006
föstudagur, desember 22, 2006
Með gleði í hjarta langar mig að óska ykkur öllum, gleðilegra jóla með kærri þökk fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða. Að blogga er gaman en þó mun skemmtilegra vegna þess að þið takið þátt í því með mér.
Hafið það gott og vona ég að ykkur eigi öllum eftir að líða vel hvernig svo sem ástatt er hjá hverjum og einum. Kær jólakveðja frá mér og mínum og kveð ég ykkur í kútinn en hitti ykkur aftur bráðum. Svanfríður sem er svo glöð yfir að hafa heimt manninn hingað á Höfn:)
mánudagur, desember 18, 2006
Ég sem ung móðir vildi að dóttir mín fengi að upplifa jólasveinana , fá í skóinn, fara á jólaböll og syngja jólasveinavísur. Ekki fékk ég þessa ósk mína uppfyllta því stelpuskottið var alls ekki á þeim buxunum að þýðast þessa karla eða neitt sem þeim fylgdi.
Hnátan setti þó skóinn út í glugga en gat þá alls ekki sofnað, var á sífelldu ráfi fram og til baka með skóinn. Hann var ýmist úti á gólfi, uppi í glugga og þegar verst lét setti hún skóinn fram á gang. Ekki gekk það, því þá kæmi enginn sveinki, hann sem sagt fyndi ekki skóinn. Við foreldrarnir gáfumst upp á þessu skómálli. Ekki voru jólaböllin betri. Um leið og sveinarnir birtust umturnaðist hnátan og endaði það yfirleitt með ósköpum.
Á aðfangadag voru svo á ferðinni allir bræðurnir þrettán og færðu börnunum gjafir. Þeir keyrðu um á traktorskerru og létu hátt. Þá var ekki um annað að ræða en að fela telpuskottið því ekki þýddi að bjóða henni upp á slíkt-það hafði verið reynt-. Var nú daman undir rúmum eða á öðrum felustöðum þar til ósköpin voru um garð gengin.
Í kaupfélaginu var Stúfur alltaf settur út í glugga fyrir jólin og var hann æði myndarlegur þar sem hann heigði sig djúpt og virðulega fyrir gestum og gangandi. En nei, svanfríður mín vildi helst ekki fara í búðina og ef ég fékk hana til þess gekk hún alltaf hlémegin og helst með lokuð augun. Þetta var ekki gott mál.
Litla stelpuskottið mitt gat ekki einu sinni horft á barnatímann í sjónvarpinu fyrir jólin eða yfir hátíðirnar því sveinki var allsstaðar.
þriðjudagur, desember 12, 2006
Frá því að ég lenti á Íslandi þá hef ég: -farið afskaaaaplega seint að sofa (ekki gáfulegt þegar maður á 2 ára gamlan strák) og reynt að kúra a.m.k til 10 á morgnana. -Örugglega borðað 15 pu(y)lsur (þið getið ekki rifið kjaft yfir stafsetningunni...ég hef bæði u og y :) með öllu en litlu sinnepi og kókómjólk með síðan ég lenti og oftast fengið mér stóran súkkulaði draum með. -Blótað all hressilega, einum of oft kannski. -Drakk appelsín og malt í fyrsta sinn síðan á jólunum 2004, í kvöld, og ætla að gera meira af því á morgun. -Farið á rúntinn um Höfn og slúðrað með vinkonunum.............................. Svo á móti kemur að ég hef ekki haft mig í að hitta alla sem mig langar til að hitta, ætla alltaf að gera það á morgun en áður en ég veit af þá er "á morgun" orðið að 5.janúar og ég flogin í burtu í langan tíma. Það tekur bara dulítinn tíma að aðlagast, ef hægt er að segja svo, öllu hér aftur þannig að ég hef ákveðið að taka hlutina á mínum tíma og gera ekki neitt fyrr en ég er tilbúin í þá. Annars er yndislegt að upplifa í fyrsta skipti, barnið sitt og skóinn....og finnst mér frábært að geta gert það í fyrsta skipti hér uppi á Íslandi. Ég hefði áreiðanlega beðið með þetta í eitt ár til viðbótar ef við myndum halda jólin heima í Cary en úr því við erum hér þá finnst mér tilvalið að hitta jólasveininn aftur eftir 23 ára aðskilnað...guð minn góður-ég og jólasveinar...það er efni í 3 pistla. Ég kveð ykkur í kútinn og hlakka til að heyra frá ykkur. Svanfríður
mánudagur, desember 11, 2006
Ég virðist einungis geta skrifað stutta pistla þessa dagana þannig að ég set þetta inn:) Svo er alltaf gaman að skoða þetta hér og sjá hversu ólíkt fólk upplifir jólin. Annars segi ég allt svona ljómandi gott bara, nýt þess að sofa út í öllu myrkrinu en á svolítið erfitt með geispann í öllu skammdeginu-mér finnst ég geispa daginn út og inn. Eru þið svona líka?
Annars kveð ég ykkur í kútinn í bili og hlakka til að heyra almennilega í ykkur og af ykkur. Svanfríður.
sunnudagur, desember 10, 2006
laugardagur, desember 09, 2006
Bert: I miss you.
Ég kveð ykkur í kútinn í bili,Svanfríður.
þriðjudagur, desember 05, 2006
....ég er komin heim í heiðardalinn, ég er komin heim með slitna skó....sem minnir mig á það að ég þarf að kaupa mér ný skópör en það er efni í annan pistil. Ferðin gekk yfir höfuð vel, Eyjólfur stóð sig vel og var ég stolt af mínum 2 ára ferðalang. Hann átti dulítið erfitt með sig í vélinni frá Chicago til Boston, fattaði ekki afhverju að það þurfti að sitja kjurr með belti yfir sig miðjan og fá svo bara einn poka af salthnetum en ekki tvo. Ferðin til Keflavíkur tók 5 tíma og hellti ég íslensku brennivíni yfir Dilönu í Rockstar Supernova en ég fer nánar út í það seinna...en það var pínlegt atriði og þá fyrir mig. Við Eyjólfur stoppuðum 4 daga í RVK og flugum á Höfn á sunnudaginn var. Ég taldi okkur vera orðin ágætlega hress eftir ferðina en ég fann það á mér að þegar ég var komin heim til mömmu og pabba að þá helltist ferðaþreytan yfir mig því þá virkilega gat ég slakað á og nú er vika síðan við lentum og ég finn núna (klukkan 00.35) að ég fer að verða syfjuð þannig að íslenski tíminn er að sigra þann bandaríska-enda hef ég alltaf vitað að Ísland, þótt lítið sé, geti alveg sigrað sér stærri þjóðir!!! Ég hef frá mörgu að segja, svo mörgu og mun ég gera það í skömmtum þannig að þið getið alveg haldið áfram að kíkja í heimsókn hingað til mín. Bert...now you don't have any reason NOT to read my site-it's in a language you'll understand:) Everything is fine, we miss you (I really want to write something more but I can't, not in here:)
Ég kveð ykkur í kútinn, Svanfríður.